20 Ágúst 2010 12:00

Brot 126 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, við Kirkjusand. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 649 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sextán óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 89.