20 Desember 2017 11:04

Brot 56 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í suðurátt, á móts við Kleppsveg 78. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 586 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 87.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu,en þess má geta að rigning og rökkurt var á meðan hraðamælingunni stóð.