15 Janúar 2018 16:06

Brot 102 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í suðurátt, á móts við Kleppsveg 78. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 687 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sautján óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 90.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og hálkuþekja var á meðan hraðamælingunni stóð.