22 Febrúar 2018 15:41

Brot 70 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á móts við Kirkjusand. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 630 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Átta óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 91.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að éljagangur og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.