15 Maí 2018 09:57

Brot 493 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 9. maí til föstudagsins 11. maí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tæplega tveimur dögum fóru 12.853 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sextán óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 122.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.