14 Október 2010 12:00

Brot 98 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, við Kirkjusand. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 608 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sautján óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 95.

Við vöktun á þessum sama stað í ágúst var brotahlutfallið 19%.