1 Júní 2018 17:13

Brot 219 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 30. maí til föstudagsins 1. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á rúmlega fjörutíu og fjórum klukkustundum fóru 15.146 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fjórir óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 107.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.