28 Maí 2018 16:01

Brot 637 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 24. maí til mánudagsins 28. maí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tæpum fjórum dögum fóru 27.366 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Níu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 109.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.