22 Maí 2018 16:07

Brot 757 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá föstudeginum 18. maí til þriðjudagsins 22. maí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tæplega fjórum dögum fóru 23.240 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu og tveir óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 125.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.