8 Júní 2018 11:23

Brot 154 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá þriðjudeginum 5. júní til fimmtudagsins 7. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tæplega tveimur dögum fóru 11.677 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 86 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.