12 Júní 2018 09:11

Brot 204 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 7. júní til laugardagsins 9. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á rúmlega tveimur dögum fóru 14.972 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.