31 Ágúst 2018 16:14

Brot 169 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 29. ágúst til föstudagsins 31. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tveimur dögum fóru 16.879 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.