17 Nóvember 2010 12:00

Brot 161 ökumanns var myndað á Sæbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í norðurátt, að Súðarvogi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 620 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74,5 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu og átta óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 92. 

Á umræddum vegarkafla hefur verið nokkuð um umferðaróhöpp og þannig var vöktun lögreglunnar tilkomin. Hún mun jafnframt verða við hraðamælingar á fleiri slíkum stöðum á næstunni.