17 September 2018 13:20

Brot 171 ökumanns var myndað á Sæbraut í Reykjavík frá föstudeginum 14. september til mánudagsins 17. september. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á þremur dögum fóru 18.958 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.