26 September 2018 15:13

Brot 93 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá mánudeginum 24. september til miðvikudagsins 26. september. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tveimur sólarhringum fóru 12.745 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.