24 September 2018 11:43
Brot 170 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá föstudeginum 21. september til mánudagsins 24. september. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á þremur sólarhringum fóru 20.493 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.
Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.