30 Október 2018 12:00

Brot 80 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá mánudeginum 29. október til þriðjudagsins 30. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á einum sólarhring fóru 7.603 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 103.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.