5 Nóvember 2018 16:11

Brot 611 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá föstudeginum 2. nóvember til mánudagsins 5. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á rúmlega þremur sólarhringum fóru 18.334 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 106.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.