9 Nóvember 2018 14:41

Brot 348 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 7. nóvember til föstudagsins 9. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tveimur sólarhringum fóru 15.502 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.