13 Nóvember 2018 15:05

Brot 662 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá föstudeginum 9. nóvember til mánudagsins 12. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á rúmlega þremur sólarhringum fóru 17.426 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 80 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.