17 Febrúar 2014 12:00

Brot 114 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, við Kirkjusand. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 609 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tólf óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 92.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.