12 Apríl 2019 14:48

Brot 109 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 11. apríl til föstudagsins 12. apríl. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á einum sólarhring fóru 7.655 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 97. Tveimur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili..

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.