30 September 2009 12:00

Brot 96 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, að Kringlumýrarbraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 389 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu og einn ók á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 94.