24 Febrúar 2011 12:00

Brot 59 ökumanna voru mynduð á Sævarhöfða í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sævarhöfða í norðurátt, á móts við vörubílastöðina Þrótt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 131 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum meirihluti ökumanna, eða 45%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Nítján óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 97. 

Eftirlit lögreglunnar var tilkomið vegna ábendinga um hraðakstur á þessum stað.