27 Maí 2013 12:00

Brot 30 ökumanna voru mynduð á Sævarhöfða í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sævarhöfða í vesturátt, við Tangabryggju. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 151 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 76.

Vöktun lögreglunnar á Sævarhöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.