29 Nóvember 2013 12:00

Brot 41 ökumanns var myndað á Sævarhöfða í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sævarhöfða í suðurátt, á móts við malbikunarstöðina Höfða. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 113 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.