11 Júlí 2014 12:00

Brot 38 ökumanna voru mynduð á Sævarhöfða í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sævarhöfða í suðurátt, að Malarhöfða. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 134 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 80.

Vöktun lögreglunnar á Sævarhöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.