7 Ágúst 2015 17:50
Brot 50 ökumanna voru mynduð á Sævarhöfða í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sævarhöfða í suðurátt, á móts við malbikunarstöðina. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 147 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.
Vöktun lögreglunnar á Sævarhöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.