25 Júní 2010 12:00

Brot 79 ökumanna voru mynduð á Sævarhöfða í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sævarhöfða í suðurátt, á móts við vörubílastöðina Þrótt. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 255 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tuttugu og fjórir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 87. 

Eftirlit lögreglunnar á Sævarhöfða var tilkomið vegna ábendinga um hraðakstur á þessum stað.