4 Maí 2017 10:23

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Salavegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Salaveg í vesturátt, við Dynsali. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 54 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Salavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.