15 Apríl 2009 12:00

Fjórtán voru staðnir að hraðakstri á Salavegi í Kópavogi í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 14 ökumanna mynduð á Salavegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, að Dynsölum. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 64 ökutæki þessa akstursleið og því óku 22% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Þrír óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 88.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Salavegi. Þá óku 38% of hratt eða yfir afskiptahraða en meðalhraði hinna brotlegu var hinsvegar sá sami og núna, eða 65 km/klst.