5 Október 2010 12:00

Brot 12 ökumanna voru mynduð á Salavegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Salaveg í suðurátt, við Dynsali. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 69 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í fimmtungur ökumanna, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Salavegi, en í nágrenninu er Salaskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.