17 Apríl 2012 12:00

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Salavegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Salaveg í vesturátt, við Dynsali. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 74 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70. 

Vöktun lögreglunnar á Salavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.