15 Apríl 2015 16:26

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Salavegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Salaveg í vesturátt, við Dynsali. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 67 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 68 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 87.

Vöktun lögreglunnar á Salavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.