13 Apríl 2016 12:29

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Salavegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Salaveg í vesturátt, við Dynsali. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 72 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 66.

Vöktun lögreglunnar á Salavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.