31 Ágúst 2010 12:00

Brot 21 ökumanns var myndað á Selásbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Selásbraut í norðurátt, við Selásskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 66 ökutæki þessa akstursleið og því ók um þriðungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Vöktun lögreglunnar á Selásbraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.