13 Mars 2012 12:00

Brot 27 ökumanna voru mynduð á Selásbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Selásbraut í norðurátt, við Selásskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 69 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar á Selásbraut er liður í umferðareftirliti hennar við skóla á höfuðborgarsvæðinu.