21 Maí 2012 12:00

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Selásbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Selásbraut í norðurátt, við Rauðás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 118 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 67. 

Vöktun lögreglunnar á Selásbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.