9 Október 2012 12:00

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Selásbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Selásbraut í suðurátt, við Rauðás. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 149 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Selásbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.