23 September 2008 12:00

Brot 21 ökumanns var myndað á Selásbraut í Árbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Selásbraut í norðurátt, við Selásskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 72 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49. Á þessum stað á Selásbraut eru hraðahindranir.

Vöktun lögreglunnar á Selásbraut er liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.