16 Júlí 2019 08:48

Brot 35 ökumanna voru mynduð á Seljabraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Seljabraut í vesturátt, á móts við Seljabraut 20. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 74 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 47%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar á Seljabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.