1 Júlí 2020 16:15

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Seljabraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Seljabraut í vesturátt, á móts við Seljabraut 20. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 81 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Seljabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.