20 Ágúst 2020 10:00

Brot 41 ökumanns var myndað á Seljabraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Seljabraut í vesturátt, á móts við Seljabraut 20. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 83 ökutæki þessa akstursleið og því ók um helmingur ökumanna, eða 49%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sex óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Seljabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.