4 Apríl 2014 12:00

Brot 66 ökumanna voru mynduð á Seljabraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Seljabraut í austurátt, á milli Engjasels og Flúðasels. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 115 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 57%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimmtán óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 62.

Vöktun lögreglunnar á Seljabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.