22 September 2014 12:00

Brot 43 ökumanna voru mynduð á Seljabraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Seljabraut í austurátt, á móts við Seljabraut 24. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 60 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 72%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 59.

Vöktun lögreglunnar á Seljabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.