23 Mars 2015 15:15

Brot 47 ökumanna voru mynduð á Seljabraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Seljabraut í austurátt, á móts við Seljabraut 22. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 94 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Níu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar á Seljabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.