23 Nóvember 2015 17:21

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Seljabraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Seljabraut í vesturátt, á móts við Seljabraut 66. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 63 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Seljabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.