8 Apríl 2016 15:55

Brot 30 ökumanna voru mynduð á Seljabraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Seljabraut í vesturátt, á móts við Seljabraut 20. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 86 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 61.

Vöktun lögreglunnar á Seljabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.