24 Júní 2016 15:55

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Seljabraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Seljabraut í vesturátt, á móts við Seljabraut 20. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 87 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 37%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar á Seljabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.