6 Desember 2013 12:00

Brot 41 ökumanns var myndað á Seljabraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Seljabraut í austurátt, á milli Engjasels og Flúðasels. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 76 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 54%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Níu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 60.

Vöktun lögreglunnar á Seljabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.